Viðlag

Sweeney Todd

Salurinn, Kópavogur

Sweeney Todd, rakarinn illi á Fleet Street, snýr aftur til Lundúna úr útlegð sinni í Ástralíu — og kemst að því að allt sem hann elskar hefur verið tekið frá honum. Í slagtogi við bökugerðarkonuna Frú Lóett nær hann hefndum og grunlausir borgarbúar gæða sér á bókstaflegum afrakstri hefndarverkanna.

Söngleikjakórinn Viðlag hefur getið sér gott orð fyrir kraftmikinn kórsöng og líflegan flutning. Kórinn ræðst nú ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, en margrómað verk tónskáldsins Stephens Sondheim er nú fært í nýjan búning, í öflugri tónleikauppfærslu með nýjum kórútsetningum Axels Inga Árnasonar.

Í aðalhlutverkum eru Arnar Hauksson og Ylfa Marín Haraldsdóttir. Leikstjóri verksins er Vala Fannell. Höfundur texta og tónlistar er Stephen Sondheim. Handritið er eftir Hugh Wheeler, byggt á leikriti Christophers Bond. Íslensk þýðing er eftir Gísla Rúnar Jónsson.

Um tónleikana
Staður

Salurinn

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland
Map of Salurinn
Taktu með þér einhvern sem þér þykir vænt um. Eða komdu á eigin vegum — þú verður í góðum félagsskap.
Deila